Sandafell er gisti- og veitingahús í tveggja hæða nýuppgerðu steinsteyptu húsi, byggðu 1947.
Við bjóðum 13 herbergi, þar af eru 2 fjölskylduherbergi. 8 herbergjanna eru með sérbaðherbergi en sjónvarp er á öllum herbergjum sem og ókeypis þráðlaus internetaðgangur. Öll herbergin eru stór og útsýni frá þeim mjög fallegt.
Veitingasalur rúmar um 80 manns í sæti. Þar er á sumrin boðið upp á góðan mat á sanngjörnu verði. Morgunverður er framreiddur í veitingasal.
Veitingasalur býður upp á matseðil á sumrin.
Tveggja manna herbergi með útsýni yfir fjörðinn.
Fjölskylduherbergi.