Forsíða

Aðstaða

Verðskrá

Afþreying

Staðsetning

Hlekkir


English

Deutsch

Gestir í Dýrafirði hafa úr ýmsu að velja sér til afþreyingar.


Vélsmiðja G.J. Sigurðssonar
Vélsmiðjan er elsta starfandi vélsmiðja á landinu, öll upprunaleg tæki á staðnum, sjón er sögu ríkari. Heimasíða Vélsmiðjunnar

Hestar í girðingu

Hestar í Dýrafirði.

Hestaferðir
Hestaferðir og hestaleiga eru í boði hjá Hestamannafélaginu Stormi. Sjá nánar: Stormur

Gönguferðir
Stórkostlegar gönguleiðir eru í nágrenninu um Vestfirsku alpana. Hvort sem fjallgöngur eða fjörugöngur heilla ættu allir að finna einhverja götu fyrir sig. Gönguleiðir í Ísafjarðarsýslu

Á Víkingslóðum
Víkingabúðir, hátíðarsvæði. Verkefni tengt Gísla sögu Súrssonar. Hægt er að fá gönguferð með leiðsögn um heimaslóðir Gísla Súrssonar í Haukadal. Víkingar á Vestfjörðum

Yfirsýn yfir hluta golfvallarins í Meðaldal

Golfvöllur.

Sundlaug
Sundlaug með heitum potti er á Þingeyri.

Golfvöllur
9 holu golfvöllur er í Meðaldal, skammt frá Þingeyri. Umhverfi vallarins er einstaklega fallegt. Golfklúbburinn Gláma

Fiskveiði
Silungsveiði í vatni og/eða sjóstangveiði með skipstjóra er einn valkostur fyrir áhugasama.


Dynjandi í Arnarfirði

Dynjandi í Arnarfirði er í góðu færi við Þingeyri.

Jeppaferð
Jeppavegur er milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar þar sem nesið er þrætt. Ægifögur leið og hentugt sem dagsferð. Leitið upplýsinga um ástand vegarins áður en lagt er af stað.

Þingeyri og Dýrafjörður eru staðsett miðsvæðis á Vestfjörðum. Dagsferðir á marga áhugaverða staði er góður valkostur. Til dæmis dagsferð á Ísafjörð eða sigling á Hornstrandir. Eins er gott aðgengi að Önundarfirði eða sunnanverðum Vestfjörðum með Látrabjargi og Breiðafirði.